Grunnskólinn á Raufarhöfn

Moya er vefumsjónarkerfi frá Stefnu ehf.

Nýjustu fréttir

  • Myndir frá Grænum degi haustsins

    Síðastliðinn fimmtudag héldum við í grunn- og leikskólanum upp á Grænan dag haustsins. Um 40 manns hélt í kartöflugarð skólans í rjómablíðu og tók upp kartöflur í mötuneyti skólans, gróðursetti 67 plöntur og borðaði nokkur kíló af berjum. Eftir það hélt hersingin aftur upp í skóla, gæddi sér á djúsi og kexi og fór í leiki. Stór hluti hópsins fór upp á fótboltavöll þar sem úrvalslið Jóhann skólastjóra og Róberts íþróttakennara öttu kappi. Óþarfi er að geta til um úrslitin en maður leiksins var án alls vafa Rósa Björg Þórsdóttir. Aðrir eins taktar hafa ekki sést á vellinum síðan Oliver Bierhoff var upp á sitt besta.

    Myndir frá þessum frábæra degi má nálgast hér.

  • Grænn dagur haustsins

    Á fimmtudaginn höldum við upp á Grænan dag haustsins. Kennt verður samkvæmt stundaskrá til 11:40 og svo fara nemendur í mat. Kl. 12:20 göngum við svo öll saman frá skólanum í kartöflugarðinn okkar þar sem við tökum upp kartöflur og gróðursetjum plöntur. Við biðjum foreldra að senda börn sín klædd með þetta í huga. Við stefnum á að koma aftur í skólann um kl. 14:00 þar sem við fáum okkur djús og kex og förum í nokkra leiki á skólalóðinni. Grænn dagur haustsins endar svo kl. 14:45.

    Við hvetjum alla foreldra sem eiga kost á að slást í hópinn með okkur.

     Kær kveðja;
    starfsfólk Grunnskólans á Raufarhöfn


  • Innkaupalisti 2010-2011

    Hér má sjá það sem nemendur þurfa að hafa í skólann í vetur. Munið að margt af þessu er til frá því í fyrra.


moya - Útgáfa 1.7 2006 - Stefna ehf

Innskráning