112 dagurinn 11. febrúar

112 dagurinn 11. febrúar Í dag fengum við til okkar sjúkraflutningsmenninga, þá Jóhannes og Valla. Þeir sýndu okkur sjúkrabílinn og fengu allir að kíkja

  • Undirsida1

112 dagurinn 11. febrúar

Í dag fengum við til okkar sjúkraflutningsmenninga, þá Jóhannes og Valla. Þeir sýndu okkur sjúkrabílinn og fengu allir að kíkja inn í hann. Eftir að allir voru búnir að fá að skoða fóru eldri nemendurnir með sjúkrabílnum út á slökkvistöð þar sem þeir fengu að skoða slökkvibílinn og fengu auðvitað fræðslu um hvernig ferlið gengur fyrir sig, bæði hvað varðar sjúkrabílinn og slökkvibílinn. Á föstudaginn 7. febrúar kom lögreglumaður í heimsókn á leikskólann, spjallaði við leikskólabörnin og sýndi þeim lögreglubílinn.

Myndir frá þessum dögum er hægt að finna hér.


Athugasemdir


Svæði

Tilkynningar

                                                   Virðing – Gleði – Ábyrgð – Sveigjanleiki       sími: 464-9870| skolastjorn@ais.is