Grunnskóli Raufarhafnar auglýsir eftir starfsfólki

Grunnskóli Raufarhafnar auglýsir eftir starfsfólki Grunnskóli Raufarhafnar auglýsir eftir starfsfólki

  • Undirsida1

Grunnskóli Raufarhafnar auglýsir eftir starfsfólki

Grunnskóli Raufarhafnar auglýsir eftir matráði í 55% stöðu. Í starfinu felst að sjá um morgunverð og hádegisverð fyrir nemendur og starfsfólk, 4 daga vikunnar.  Einnig innkaup fyrir mötuneyti og þrif í og við mötuneytið. Æskilegt er að viðkomandi geti hafið störf 1. maí n.k.  Vinnutími í júní og ágúst er afar sveigjanlegur.

Umsóknarfrestur í stöðu matráðs er til 31. mars 2018.

Einnig leitum við að leikskólakennara í fullt starf frá og með 7. ágúst. Viðkomandi þarf að vera barngóður, sveigjanlegur, hæfur í samskiptum og tala góða íslensku. 

Umsóknarfrestur í stöðu leikskólakennara er til 15. maí 2018.

Grunnskóli Raufarhafnar er samrekinn grunn- og leikskóli með 20 nemendur þar sem verið er að innleiða uppeldisstefnuna Jákvæður agi.  Skólinn nýtur mikils stuðning frá samfélaginu og leggjum við áherslu á samvinnu sem og jákvæðni.

Upplýsingar veitir Birna Björnsdóttir skólastjóri í síma 893-4698 og einnig má senda tölvupóst á netfangið birna@raufarhafnarskoli.is


Athugasemdir


Svæði

Tilkynningar

                                                   Virðing – Gleði – Ábyrgð – Sveigjanleiki       sími: 464-9870| skolastjorn@ais.is