Myndir frá Mývatni
- 97 stk.
- 01.06.2012
Nemendur í 4.-7. bekk fór á Mývatn þar sem þau voru í þrjá daga ásamt 7. bekk úr Borgarhólsskóla og 6.-8. bekk úr Reykjahlíðarskóla.
Skoða myndirNemendur í 4.-7. bekk fór á Mývatn þar sem þau voru í þrjá daga ásamt 7. bekk úr Borgarhólsskóla og 6.-8. bekk úr Reykjahlíðarskóla.
Skoða myndir6. bekkur úr Borgarhólsskóla kom og dvaldi hjá okkur á Raufarhöfn dagana 15.-16. maí. Unnin voru nýsköpunarverkefni, þau fengu kynningu á Heimskautsgerðinu og gerðu margt annað skemmtilegt.
Skoða myndirMiðvikudaginn 16. maí bauð Þóra og krakkarnir öllum bæjarbúum að kíkja í heimsókn í smíðastofuna og skoða úrval af verkum nemenda frá því í vetur. Ekki nóg með að boðið væri upp á fallega muni til sýnis heldur fengu allir sem vildu kaffi, djús og dýrindis vöfflur. Mikill fjöldi bæjarbúa mætti á svæðið og lét vel af verkunum og veitingunum. Við þökkum krökkunum og Þóru kærlega fyrir okkur!
Skoða myndirNemendur í 4.-7. bekk hjá Olgu hafa verið að læra um Norðurlöndin í samfélagsfræði á þessari önn. Börnin eru að sjálfsögðu orðin margs fróð og hafa verið dugleg við að vinna verkefni. Þegar kom að því að teikna upp kort af Norðurlöndunum kom sú hugmynd upp að gera það beint á vegginn, enda miklu skemmtilegra heldur en að gera það á blað sem sífellt er að detta niður og endar svo í tunnunni í lok árs. Þetta tókst frábærlega hjá krökkunum og nú hafa þau skilið eftir sig minnisvarða í skólanum til eilífðar - eða allavega þar til verður málað næst.
Skoða myndirFimmtudaginn 3. maí komu elstu nemendur leikskólans auk nemenda í 1.-4. bekk í Öxafjarðarskóla í heimsókn til okkar í einn skóladag. Mánuði áður hafði einmitt sami aldur hjá okkur farið í heimsókn til þeirra. Voru þetta afskaplega skemmtilegir dagar þar sem mörg vinatengsl mynduðust. Er það von okkar að þessar mánaðarlegu heimsóknir á milli skólanna munu halda áfram á næsta skólaári.
Skoða myndirÞóra heimilisfræðikennari og nemendur halda áfram að gera föstudagana hrikalega skemmtilega með því að segja okkur frá einu landi og kynna okkur fyrir matarmenningu þess. Síðastliðinn föstudag var einmitt komið að fjórðu og síðustu kynningu þessa vetrar. Áður höfðu Þóra og krakkarnir boðið okkur upp á mexíkóskt, kínverskt og ítalskt þema og nú var komið að tælensku þema. Eftir að krakkarnir kynntu land og þjóð var smakkað á tælenskum mat sem þau gerðu. Þóra og krakkarnir fá stórt hrós fyrir að brjóta upp föstudagana okkar í vetur. Takk fyrir!
Skoða myndirMyndir frá árshátíðarsýningu Grunnskóla Raufarhafnar 2012; Í teiti hjá prinsessunni á graskerinu.
Skoða myndirStóra upplestrarkeppnin var haldin Hnitbjörgum fimmtudaginn 22. mars 2012. Dagný Ríkharðsdóttir keppti fyrir hönd Grunnskóla Raufarhafnar. Hún stóð sig frábærlega og hreppti þriðja sætið.
Skoða myndir