Febrúar er hjartamánuður!

Febrúar er hjartamánuður! Rauður dagur föstudaginn 3. febrúar!

  • Undirsida1

Febrúar er hjartamánuður!

Febrúar er hjartamánuðurinn og við fögnum honum. Árið 2009 fór Ísland í samstarf með alþjóða hjartasamtökunum og GoRed verkefninu með megináherslu á konur og hjartasjúkdóma. Verkefnið hefur síðan þróast hjá okkur í gegnum árin og að þessu sinni er allur mánuðurinn undir, efnið óháð kyni og aldri því hjartaheilsa varðar alla.

Rauði dagurinn okkar að þessu sinni er föstudagur 3. febrúar n.k. Við hvetjum starfsmenn sveitarfélaga og þá sérstaklega í skólum, þar einnig nemendur, að klæðast rauðu og sýna þannig í verki að við eigum að hugsa vel um hjartað okkar, undirstöðu þess að við erum á lífi.


Athugasemdir


Svæði

Tilkynningar

                                                   Virðing – Gleði – Ábyrgð – Sveigjanleiki       sími: 464-9870| skolastjorn@ais.is