17. október 2014 - Lestrar 194 - Athugasemdir ( )
Á fimmtudaginn var bleikur dagur hér í skólanum og á leikskólanum. Við ákváðum að gera okkur glaðan dag og fórum
öll saman út í göngutúr. Við byrjuðum á því að renna okkur í brekkunni á tjaldstæðinu og síðan
fórum við út í fjöru.
Við vorum búin að skipta þeim niður í hópa þannig að einn í skólanum myndi vera með einum á leikskólanum.
Þetta gekk vonum framar og gaman að sjá hvað þetta eru ábyrgir og flottir krakkar sem eru í skólanum hjá okkur.
Athugasemdir