04. janúar 2012 - Lestrar 132 - Athugasemdir ( )
Um leið og við bjóðum nemendur okkar velkomna til starfa á nýju ári minnum við þá, og foreldra þeirra, á að næstu daga er dagskráin þéttskipuð. Haustönn lýkur formlega fimmtudaginn 12. janúar og því þarf allt námsmat að klárast fyrir þann tíma. Við biðjum foreldra og nemendur að fylgjast vel með heimasíðu skólans sem og tölvupósti frá umsjónarkennurum til þess að vera með á nótunum um hvenær eru próf.
Athugasemdir