13. apríl 2011 - Lestrar 281 - Athugasemdir ( )
Árshátíð Grunnskólans á Raufarhöfn verður föstudaginn 15. apríl kl. 18:00 í félagsheimilinu Hnitbjörgum. Nemendur skólans sýna þá glæsilega uppfærslu af ævintýrasöngleiknum Skilaboðaskjóðan.
Eftir sýningu býður foreldrafélagið Velvakandi leikhúsgestum upp á nautapottrétt með öllu tilheyrandi.
Verð á leiksýninguna og í matinn:
Fullorðnir kr. 2.500
Börn kr. 1.500
Leikarar kr. 500 (matur)
Frítt fyrir leikskólabörn.
Þeir sem komast ekki í dag geta komið á aukasýninguna sem verður föstudaginn 29. apríl.
Athugasemdir