26. nóvember 2014 - Lestrar 192 - Athugasemdir ( )
Á þriðjudaginn var dillidagur. Í þetta skiptið hittumst við út á Höfða og vorum með brennu. Nemendur voru búnir að búa til fjallabrauð sem þau grilluðu á tréspreki en einnig var í boði heitt súkkulaði og piparkökur. Nokkrir höfðu síðan komið með pylsur sem þau grilluðu. Það var frábær mæting og ekki mátti sjá annað en að allir skemmtu sér vel. Því miður eru engar myndir til þar sem dimmt var úti.
Athugasemdir