03. júní 2015 - Lestrar 185 - Athugasemdir ( )
Í dag hefur Lára Sóley gefið öllum leikskólum Akureyrar og Norðurþings diskinn sinn Draumahöll.
Á disknum má finna 14 þekktar vögguvísur í bland við nýtt efni.
Með disknum vill Lára Sóley hvetja foreldra og þá sem vinna með börnum að halda tónlist að börnum, syngja með þeim og fyrir
þau.
Við viljum þakka Láru Sóley kærlega fyrir þessa gjöf og mun hún koma að góðum notum við leikskólann.
Athugasemdir