21. mars 2010 - Lestrar 316 - Athugasemdir ( )
Krakkarnir okkar stóðu sig frábærlega á héraðsmóti HSÞ innanhúss í frjálsum íþróttum í gær. Þau sópuð að sér verðlaununum og lentu síðan í öðru sæti í stigakeppninni, Völsungur á Húsavík hafði betur. Austri bauð síðan krökkunum upp á pizzuhlaðborð á Sölku eftir mótið. Frábær dagur og frábærir krakkar sem stóðu sig afburða vel.
Athugasemdir