03. nóvember 2009 - Lestrar 291 - Athugasemdir ( )
Nemendur í 10. bekk skólans þreyttu eins að aðrir nemendur í öllum grunnskólum á Íslandi samræmt könnunarpróf í íslensku, stærðfræði og ensku nú í september. Krakkarnir náðu mjög góðum árangri og eiga mikið hrós skilið fyrir frammistöðu sína á prófunum. Kennarar þeirra eiga einnig skilið hrós í hnappagatið og vil ég óska þeim öllum innilega til hamingju með góð próf. Þess má geta að meðaleinkunn nemenda var yfir 7,0. Hæsta meðaleinkunn nemanda var 8,5.
Athugasemdir