Grunnskóli Raufarhafnar er samrekinn grunn- og leikskóli með 10 nemendur þar sem Uppbyggingarstefnan er höfð að leiðarljósi. Skólinn nýtur mikils stuðning frá samfélaginu og leggjum við áherlsu á samvinnu sem og jákvæðni.
Við leitum við eftir áhugasömuim, fjölhæfum og jákvæðum kennara á unglingastigi sem hefur reynslu af af íslenskukennslu fyrir útlendinga og jafnframt leitum við eftir kennara í bekkjarkennslu á yngsta og miðstigi þar sem þekking á Byrjendalæsi er mikilvæg .
Einnig leitum við að leikskólakennara. Viðkomandi þarf að vera barngóður, sveiganlegur og íslenskumælandi. Um hlutastarf er að ræða með möguleika á afleysingum.
Upplýsingar veitir Frida Elisabeth Jörgensen skólastjóri í síma 694-9063 og frida@raufarhofn.is
Umsóknarfrestur er til 25. júní 2014
Athugasemdir