Háskóli unga fólksins

Háskóli unga fólksins Um miđjan júní tekur Háskóli Íslands á sig ferskan blć ţegar kennsla hefst í Háskóla unga fólksins. Nemendur verđa börn og unglingar

  • Undirsida1

Háskóli unga fólksins

Um miðjan júní tekur Háskóli Íslands á sig ferskan blæ þegar kennsla hefst í Háskóla unga fólksins. Nemendur verða börn og unglingar fædd 1992 - 1996. Allir sem fæddir eru á þessu árabili geta skráð sig í skólann. Skólahaldið mun standa dagana 9. til 13. júní og í boði verða mörg stutt en hnitmiðuð námskeið úr ýmsum deildum og skorum Háskóla Íslands. Gert er ráð fyrir um 250 nemendum í skólanum og er þeim skipt í tvo hópa, f:1992-93 og 1994-96. Hver nemandi velur sex námskeið og einn þemadag og setur þannig saman sína eigin stundatöflu.

Á síðasta degi Háskóla unga fólksins er haldin brautskráningarhátíð. Skráning nemenda í Háskóla unga fólksins hefst 15. maí og stendur til 26. maí. Skráningin fer fram á vef Háskóla unga fólksins, www.ung.is. Skráningargjald er 15 þúsund krónur og innifalin í því eru námskeið, kennslugögn og léttur hádegisverður alla skóladagana.

Allar nánari upplýsingar um Háskóla unga fólksins má fá á www.ung.is. Verkefnisstjóri Háskóla unga fólksins 2008 er Svanhildur Kr. Sverrisdóttir.


Athugasemdir


Svćđi

Tilkynningar

                                                   Virđing – Gleđi – Ábyrgđ – Sveigjanleiki       sími: 464-9870| skolastjorn@ais.is