17. júlí 2008 - Lestrar 239 - Athugasemdir ( )
Við kennarar og starfsfólk grunnskólans og leikskólans hefjum árið með því að fara á námskeið í Uppbyggingarstefnunni. Námskeiðið verður haldið á Húsavík og munu þar koma saman kennarar og starfsfólk úr bæði norður og suður Þingeyjarsýslu. Við höfum tekið saman eitthvað af upplýsingum um þessa góðu stefnu og er þær að finna undir flipanum "Uppbygging" hér fyrir ofan í þverstikunni.
Jóhanna Dögg Stefánsdóttir
skólastjóri
Athugasemdir