03. apríl 2009 - Lestrar 333 - Athugasemdir ( )
Sýning nemenda Grunnskólans á Raufarhöfn á Kardemommubænum var í alla staði stórglæsileg. Allir nemendur skólans 6 - 16 ára tóku þátt í sýningunni og var afraksturinn hreint frábær. Krakkarnir syngja mikið í sýningunni og leiklistin býr svo sannarlega í þeim :-) Leikstjórar eru kennararnir okkar þær Heiða og Olga. Vegna fjölda áskorana verða fleiri sýningar á Kardemommubænum eftir páskafrí. Dagsetning hefur ekki verið endanlega ákveðin en fyrstu tvær vikur eftir páska koma til greina. Ef þið hafið áhuga á því að koma sendið þá póst á johanna@raufarhofn.is
Athugasemdir