13. september 2012 - Lestrar 192 - Athugasemdir ( )
Við erum svo heppin að eiga góða að og núna er það hann Indriði sem hefur verið svo dásamlegur að leyfa okkur að hugsa um garðinn sinn. Við fáum því að taka upp kartöflur í haust og sjá um garðinn hans í vor. Við erum honum mjög þakklát. Við höfum fengið fregnir af því að garðurinn er einstaklega vel hirtur og því hlökkum við einstaklega mikið til að taka upp risa kartöflur. Við ætlum að bíða eftir að veðrið leiki við okkur og þá förum við öll saman að ná í kartöflur. Við höfum myndavélina með í för og aldrei að vita nema nokkrar myndir læðist inn á heimasíðu skólans af okkur í kartöflu upptöku.
Athugasemdir