24. október 2008 - Lestrar 259 - Athugasemdir ( )
Á skemmtun grunnskólans í menningarviku færðu kvenfélagskonur skólanum góða gjöf. En það er myndbandsupptökuvél sem mun án efa koma skólanum að góðum notum. Nýverið fóru elstu krakkarnir á vegum félagsmiðstöðvarinnar á námskeið í stuttmyndagerð ásamt tölvukennaranum (sem einnig starfar í félagsmiðstöðinni) til Akureyrar. Vélin mun því koma að góðum notum. Við færum kvenfélagskonum okkar allra bestu þakkir fyrir gjöfina.
Jóhanna Dögg Stefánsdóttir
skólastjóri.
Athugasemdir