Nú hittumst við í dag, miðvikudag, klukkan 16:00 í hina árlegu laufabrauðsgerð Velvakanda (foreldrafélagsins). Við fáum að vera í kaffistofu GPG þar sem nóg pláss er fyrir okkur öll. Komið með jólaskapið, hnífa, laufabrauðshjól, bretti o.þ.h. og sköpum skemmtilega jólastemmingu. Þeir sem komast ekki kl.16:00 koma þegar þeir geta. Munum að þetta er mikilvægur þáttur í fjáröflun foreldrafélagsins og margar hendur vinna létt verk.
Á morgun, fimmtudaginn 4. desember, verður fótboltaæfing á vegum Völsungs klukkan 14:30 í íþróttahúsinu á Raufarhöfn. Jói þjálfari hjá Völsungi kemur ásamt Sigurði Ragnari Eyjólfssyni landsliðsþjálfara kvenna, Ólafi Jóhannessyni landsliðsþjálfara karla og Gunnlaugi Gunnarssyni sem sér um mótamál hjá KSÍ. Krakkar frá Lundi og Þórshöfn munu einnig koma á þessa æfingu. Hvetjum við foreldra til að koma og fylgjast með börnum sínu.
Athugasemdir