10. janúar 2014 - Lestrar 163 - Athugasemdir ( )
10. janúar fóru eldri nemendur skólans að sjá Engla alheimsins í Hofi. Við byrjuðum á því að fá okkur að borða á Bryggjunni, pizzu hlaðborð og síðan var haldið í leikhús. Foreldrar allra barnanna komu með á sýninguna sem og kennarar þeirra. Þetta var frábær sýning í alla staði. Eldri nemendurnir höfðu einmitt verið að lesa Engla alheimsins í íslensku og því gaman að geta farið á leikritið líka.
Athugasemdir