17. júlí 2008 - Lestrar 323 - Athugasemdir ( )
Við þökkum Lovísu og Jónsa kærlega fyrir góð störf hjá okkur síðast liðið ár. Við eigum eftir sakna þeirra mikið. En Lovísa er að fara í Kennaraháskólann þar sem hún komst að því hér hjá okkur að kennsla er starf sem er litríkt, skapandi og skemmtilegt. Jón ætlar eftir að hann hefur lokið við sumarþjálfun krakkanna að skella sér í að ljúka nuddnáminu sínu. Við óskum þeim góðs gengis og vonum að þau komi fljótt aftur til okkar. Aldrei að vita nema Jónsi komi aftur að þjálfa næsta sumar og líklega kíkir Lovísa á okkur í æfingakennslu ;o)
Jóhanna Dögg Stefánsdóttir
skólastjóri
Athugasemdir