04. nóvember 2011 - Lestrar 152 - Athugasemdir ( )
Nemendur á öllum aldri hafa kynnt sér mexíkóska matarmenningu í heimilisfræðitímum hjá Þóru. Í síðasta tíma í dag komum við svo öll saman niðri í mötuneyti þar sem nemendur kynntu þá rétti sem þeir höfðu gert og sögðu frá því sem þau vissu um Mexíkó. Salurinn var skemmtilega skreyttur af krökkunum og toppnum var svo náð þegar allir fengu sér að borða. Sannarlega góður endir á góðri skólaviku.
Hægt er að skoða myndir frá þessum góða degi með því að smella hér.
Athugasemdir