Norðurþing auglýsir lausa til umsóknar stöðu skólastjóra og kennara við Grunnskóla Raufarhafnar

Norðurþing auglýsir lausa til umsóknar stöðu skólastjóra og kennara við Grunnskóla Raufarhafnar Norðurþing  Grunnskóli Raufarhafnar Norðurþing

  • Undirsida1

Norðurþing auglýsir lausa til umsóknar stöðu skólastjóra og kennara við Grunnskóla Raufarhafnar

Norðurþing

 Grunnskóli Raufarhafnar

Norðurþing auglýsir lausa til umsóknar stöðu skólastjóra og kennara við Grunnskóla Raufarhafnar. Við leitum að áhugasömu, bjartsýnu og jákvæðu réttindafólki.
Skólastjóri þarf að búa yfir stjórnunarhæfileikum og lipurð í mannlegum samskiptum og hafa reynslu af kennslu og störfum með börnum og unglingum.
Kennarar þurfa að hafa áhuga á þróun skólastarfs og búa yfir góðum samskiptahæfileikum.

Meðal kennslugreina eru: Sérkennsla, kennsla yngri barna, íþróttir og sund, upplýsinga- og tæknimennt, heimilisfræði, hönnun og smíði, tónmennt, íslenska, danska og samfélagsgreinar.

 


Grunnskóli Raufarhafnar er einsetinn, heildstæður grunnskóli með um 40 nemendur. Áhersla er á öflugt foreldrasamstarf, fjölbreytta og sveigjanlega kennsluhætti. Raufarhöfn er barnvænt bæjarfélag þar sem alla nauðsynlega þjónustu er að finna.

 


Allar frekari upplýsingar veitir skólastjóri, Höskuldur Goði Karlsson, í síma 465 1241, netfang godi@raufarhofn.is

 

 

Umsóknarfrestur er til 7. maí 2007

 

 

Norðurþing er nýtt og öflugt sveitarfélag sem einkennist af fjölbreyttu mannlífi og miklum sköpunarkrafti manns og náttúru.

 

 


Athugasemdir


Svæði

Tilkynningar

                                                   Virðing – Gleði – Ábyrgð – Sveigjanleiki       sími: 464-9870| skolastjorn@ais.is