12. mars 2007 - Lestrar 192 - Athugasemdir ( )
Stóra upplestrarkeppnin fór fram að venju hér á Raufarhöfn þann 8. mars síðast liðinn. Grunnskóli Bakkafjarðar, Þórshafnar, Svalbarði, Kópaskeri og Lundi (Öxarfjarðarskóli) komu og tóku þátt í keppninni að vanda. Fyrsta sætið hreppti Vilborg Anna Jóhannesdóttir frá Grunnskóla Þórshafnar, annað sætið hreppti stelpan okkar Gréta Ingibjörg Sigtryggsdóttir og þriðja sætið hlaut Arnar Þór Geirsson frá Öxarfjarðarskóla.
Athugasemdir