14. apríl 2009 - Lestrar 283 - Athugasemdir ( )
Stóra upplestrarkeppnin fyrir nemendur 7. bekkja í Norður-Þingeyjarsýslu verður að venju haldin í félagsheimilinu Hnitbjörgum á Raufarhöfn. Hún hefst klukkan 14:00, fimmtudaginn 16. apríl. Krakkarnir lesa texta og ljóð, að lokum velur dómnefnd besta "upplesarann" og veitir honum verðlaun. Skemmtiatriði á vegum tónlistarskólanna verða í milli atriða og veitingar á vegum Kvenfélagsins Freyju á Raufarhöfn.
Athugasemdir