21. maí 2009 - Lestrar 436 - Athugasemdir ( )
Á dögunum kom í ljós að óvæntar byggingarframkvæmdir voru í fullum gangi á leikskólanum Krílabæ. Framkvæmdum var nánast lokið og byggingin hin glæsilegasta. Krakkarnir voru auðvitað mjög áhugasöm, en sjálfsagt vilja þau nú samt fá að nota vegasaltið fyrr en síðar. Lóðarvalið var semsagt ekki mjög heppilegt og ekki hafði verið sótt um byggingarleyfi, því varð að fjarlægja "bygginguna".
Athugasemdir